Nyhavn
Félag íslenskra læknanema í Danmörku (FÍLD) var stofnað haustið 2003. Í Danmörku er læknisfræði kennd á þremur stöðum, þ.e. í Árósum, Kaupmannahöfn og í Óðinsvéum. Meðlimir félagsins eru, eins og nafnið gefur til kynna, nær allir þeir Íslendingar sem nema læknisfræði í Danmörku. Hlutverk félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna, efla félagsleg tengsl, miðla upplýsingum nemenda á milli, taka á móti nýnemum og kynna félagið. Félagið hefur sex manna stjórn, skipaða tveimur fulltrúum frá hverjum skóla. Á hverjum stað er svo sjálfstæð starfsemi undirfélaga FÍLD.

Íslenskir læknanemar í Danmörku eru nú orðnir rúmlega hundrað talsins. Læknanámið er að uppbygginu mjög áþekkt læknanáminu sem kennt er við Háskóla Íslands og í læknadeildum á hinum Norðurlöndunum. Læknanám á Norðurlöndunum er viðurkennt að fullu á milli Norðurlandanna. Ef að þú hefur hug á að sækja um að nema læknisfræði í Danmörku þá er ágætt að vita að þrátt fyrir mjög óhagstætt gengi á íslensku krónunni þessa stundina þá eru möguleikarnir sem bjóðast íslenskum læknanemum til að framfleita sér nokkuð góðir. Íslenskir læknanemar í Danmörku geta fengið framfærslulán frá LÍN. Einnig er hægt að drýgja tekjurnar Í gegnum Félag danskra læknanema (FADL).

Félag íslenskra læknanema í Danmörku hefur ár hvert fengið fjölmargar fyrirspurnir frá áhugasömum Íslendingum um námið og sjálft umsóknarferlið. Með þessari heimasíðu reynum við meðal annars að aðstoða aðeins þá Íslendinga sem hafa hug á að lesa læknisfræði í Danmörku, í að stíga sín fyrstu spor.  
Á þessari heimasíðu vísum við oftast á hvar ákv. upplýsinga er aflað. Athugið þó að rangar upplýsingar geta leynst inni á þessari síðu, t.d. í tengslum við umsóknarferlið sem er í stöðugri mótun ár eftir ár hjá háskólunum í Danmörku. Við tökum enga ábyrgð á þeim villum sem geta leynst inni á þessari heimasíðu, við skorum á alla gesti að leita að áreiðanlegustu upplýsingum hverju sinni.