Lög FÍLD:
1. Félagið heitir Félag íslenskra læknanema í Danmörku (d. Foreningen af islandske lægestuderende i Danmark), skammstafað FÍLD.
2. Félagar teljast þeir íslensku stúdentar, sem stunda nám í læknisfræði við Århus Universitet, Københavns Universitet eða Syddansk Universitet. Ef stúdent vill ekki vera í félaginu getur hann sagt sig úr því skriflega við formann í viðkomandi skóla.
3. FÍLD hefur engin félagsgjöld.
4. Hlutverk félagsins er að gæta að hagsmunum félagsmanna, þ.á.m í atvinnumálum, efla tengsl þeirra og standa fyrir fræðslu á læknanámi í Danmörku. Ennfremur að hafa forgöngu í félagslífi íslenskra læknanema í Danmörku. Einnig skal það stuðla að samvinnu við samtök lækna og læknanema innan lands sem utan.
5. Félagið skal standa fyrir eftirfarandi: Árlegum aðalfundi ásamt árshátíð, heimasíðu og kynningu á náminu.
6. Skulu nemendur skólanna þriggja skiptast á að halda aðalfundi.
7. Löglega telst boðað til aðalfundar sé til hans boðað með fjögurra vikna fyrirvara. Aðalfund skal halda í tengslum við árlega árshátíð félagsins og skal sá skóli sem heldur árshátíð boða til aðalfundar. Lög félagsins skulu send félagsmönnum ásamt fundarboði með tveggja vikna fyrirvara. Lagabreytingartillögur og tilkynningar um framboð í embætti skulu berast formanni frá þeim skóla er boðar til fundar með tölvupósti eigi síðar en viku fyrir boðaðan aðalfund.
8. Dagskrá aðalfundar: Kynnt yfirlit frá stjórn um helstu þætti í starfi félagsins það sem af er árinu. Tillögur til laga- og reglugerðarbreytingar ræddar og atkvæði greidd þar um. Kosning í stjórn FÍLD. Önnur mál. Aðild félagsins að stærri samtökum skal bundin með reglugerð um það efni.
9. Stjórn FÍLD er skipuð af tveimur fulltrúum frá hverjum skóla. Hver skóli sér um að velja sína fulltrúa fyrir aðalfund.
10. Stjórn skiptir með sér störfum. Sá skóli sem heldur aðalfund og árshátíð fer með formennsku og skipar formann félagsins næstu 12 mánuði eða fram að næsta aðalfundi. Formaður FÍLD er helsti formælandi félagsins út á við, hann boðar stjórnarfundi og stýrir þeim. Einnig setur hann aðalfund og skipar fundarstjóra og fundarritara þeirra.
11. Fundarritari ritar fundargerð aðalfunda og stjórnarfunda og kemur á framfæri fréttum af starfi félagsins.
12. Þar sem að FÍLD hefur enga peningastarfsemi og meðlimir greiða ekki félagsgjöld hefur félagið engan ársreikning né gjaldkera. Hugsanlegur gróði sem fæst af að halda árshátíð skal notaður í að halda úti heimasíðu félagsins.
13. Árshátíðarkostnaði ber að halda í lágmarki. Vakni grunur félagsmanna um að árshátíðarnefnd dragi til sín fé eða standi óheiðarlega að undirbúningi/framkvæmd árshátíðar geta stjórnarmeðlimir krafist þess að fá reikninga í hendur vegna kostnaðarins.
14. Ef skipting atkvæða innan stjórnar FÍLD er jöfn einhverju sinni skal efna til fjöldaatkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Atkvæðagreiðsla skal afgreidd með bréfasendingum/tölvupósti og þarf a.m.k. fjórðungur félagsmanna að taka þátt í kosningunum til þess að þær teljist gildar.
15. Stjórnarmeðlimir úr hverjum skóla bera ábyrgð á að gera félagatal og halda utan um samskipti innan síns skóla og við hina skólana. Allir stjórnarmeðlimir taka virkan þátt í ákvörðum stjórnar og vinna að markmiðum félagsins.
16. Öllum meðlimum félagsins er heimilt að semja tillögu að yfirlýsingu í nafni félagsins. Slík yfirlýsing skal berast stjórn sem svo ber að gera yfirlýsinguna aðgengilega fyrir alla meðlimi. Allir meðlimir hafa rétt á að andmæla eða koma með breytingatilllögur í 7 daga eftir að slík yfirlýsing hefur verið gerð aðgengileg. Svo framarlega sem engar athugasemdir eru gerðar getur stjórn gefið yfirlýsingu út í nafni félagsins. Ef fjórðungur félagsmanna andmælir hugsanlegri yfirlýsingu getur stjórn ekki gefið hana út.
17. Allar fjárskuldbindingar yfir 1000 DKK sem gerðar eru í nafni félagsins skulu bornar sérstaklega undir stjórn til samþykktar, hvort sem á móti koma utanaðkomandi styrkir eður ei.
18. Stjórn FÍLD boðar til félagsfundar þegar tilefni gefst. Henni er skylt að boða til fundar svo fljótt sem unnt er og málefni krefst, ef fjórðungur félagsmanna eða fleiri æskja þess. Til funda skal boðað á sama hátt og segir til um aðalfund, þó með minnst viku fyrirvara. Þeir einir hafa atkvæðisrétt sem mæta á félagsfund og ekki er krafist ákveðins lágmarksfjölda mættra félagsmanna til að atkvæðagreiðsla sé gild. Fundurinn skal haldinn á þeim stað sem fer með formennsku í það skipti.
19. Vantraust á stjórnina eða einstaka embættismenn félagsins skal borið fram skriflega og skal að minnsta kosti 1/4 hluta félagsmanna undirrita það. Stjórninni er skylt að halda félagsfund um vantraust innan hálfs mánaðar og skal boðið til hans á sama hátt og segir til um aðalfund. Til að samþykkja tillögu um vantraust þarf 2/3 greiddra atkvæða fundarmanna. Skal þá að nýju kosið í laus embætti á sama hátt og á aðalfundi. Ef ekki kemur fram framboð í embætti hefur stjórn FÍLD leyfi til að finna fulltrúa í það embætti og fá hann samþykktan á félagsundi ef þörf krefur.
20. Segi stjórnarmeðlimur af sér skal hver skóli leysa það fyrir sig og finna staðgengil þannig að félag hvers skóla hafi alltaf tvo fulltrúa í stjórn.
21. Breytingar á lögum þessum verða aðeins gerðar á löglegum aðalfundi eða á félagsfundi, enda verði boðað til hans á sama hátt og til aðalfundar. Tillögum til lagabreytinga skal skila til stjórnar a.m.k. viku fyrir aðalfund eða almennan félagsfund og skulu með sömu tímamörkum sendar til félagsmanna. Til þess að samþykkja tillögur um lagabreytingar þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða á viðkomandi fundi.
22. Lög þessi öðlast þegar gildi.