Að sækja um í Kaupmannahafnarháskóla
Kvóti 1 & kvóti 2
Allir þeir Íslendingar sem sækja um í Kaupmannahöfn, sem og annars staðar í Danmörku, gera það í gegnum kvóta 2. Í kvóta 2 ertu metinn eftir ákveðnu punktakerfi (og þetta kerfi er misjafnt milli skóla) og þá er litið á alla þá reynslu sem þú hefur öðlast í gegnum ævina; menntun, starfsreynslu og í rauninni allt það sem mótar þig.
Í kvóta 1 eru umækjendur einungis metnir á meðaleinkunn úr menntaskóla og ef meðaleinkunn úr framhaldsskóla er nógu há færist umsóknin þín sjálfkrafa úr kvóta 2 og yfir í kvóta 1.
Umsóknir fyrir kvóta 2 verða að hafa borist skólanum fyrir klukkan 12 á hádegi þann 15. mars ár hvert. Umsóknin sendist til:
Københavns Universitet
Vejledning & Optagelse
Fiolstræde 1
1171 København K
Aðgangskröfur
- Þú skalt hafa lokið stúdentsprófi eða annarri sambærilegri menntun. Listi yfir sambærilega menntun.
- Þeir sem ekki hafa lokið stúdentsprófi geta séð nánari leiðbeiningar hér.
- Þú skalt hafa lokið eftirfarandi á framhaldsskólastigi:
- Niveau A í dönsku, sem samsvarar 15 einingum í íslensku. Athugið að hér er átt við móðurmál umsækjenda.
- Niveau B í ensku, sem samsvarar 9 einingum í ensku.
- Niveau A í stærðfræði, sem samsvarar 20 einingum í stærðfræði.
- Niveau B í efnafræði, sem samsvarar 6 einingum í efnafræði (EFN102, EFN 203, EFN 303 og EFN313) eða Niveau A í bioteknologi.
- Niveau B í eðlisfræði, sem samsvarar 6 einingum í eðlisfræði (EÐL103 og EÐL203).
Hér geturðu valið Island í felliglugganum og svo karakterer til að reikna einkunnirnar þínar yfir á danskan skala. Í dag er notaður svokallaður 7-trinsskali í Danmörku.
Sú meðaleinkunn sem þarf til að komast inn í gegnum kvóta 1 er mjög misjöfn milli ára. Athugaðu að ef þú ferð á standby þá færðu pláss ef einhver afþakkar plássið sitt, eftir því hvar þú ert í röðinni, en ef þú kemst ekki inn þá færðu loforð um að komast inn að ári.
Ef sótt er um innan við tveimur árum eftir að framhaldsskólamenntun var lokið færðu flýtibónus og meðaleinkunnin þín úr framhaldsskóla er hækkuð um 8% (margfaldað með 1,08). Þetta getur munað miklu!
Umsóknin
KOT-umsóknarheftið kemur út 1. febrúar ár hvert. Þú getur m.a. nálgast heftið á Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands eða rafrænt. Leiðbeiningar um útfyllingu umsóknarinnar finnast í heftinu. Íslenskar leiðbeiningar er hægt að fá á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands.
Þú fyllir fyrst út prieritoringsskema, sem er yfirleitt framarlega í heftinu. Þar tekurðu fram þau prógröm sem þú vilt sækja um í þeirri röð sem þú vilt helst. Ef þú til dæmis vilt sækja um læknisfræði í bæði Kaupmannahöfn, Óðinsvé og Árósum seturu þá skóla í viðeigandi röð. Aftast í heftinu er listi yfir kóða fyrir ákveðna menntun í ákveðnum skólum.
Næst fyllir út ansøgninsskema fyrir hvern og einn skóla/menntun sem þú velur. Þetta skema sendist til hvers og eins skóla fyrir sig. Prieritoringsskema sendist til þess skóla sem þú settir í fyrsta sæti í forgangsröðinni.
Þú getur valið milli þess að byrja á haustönn (í september, sommerstart) eða á vorönn (í febrúar, vinterstart). Langflestir velja að byrja á haustönn og því getur vel verið að þú fáir eingöngu pláss á vorönn jafnvel þó þú hafir valið að byrja að hausti til. Yfirleitt fá eldri nemendur forgang í sommerstart, en það getur þó verið misjafnt.
Auk afrits af stúdentsprófi (sem þú færð hjá framhaldsskólanum þínum) skaltu muna að láta fylgja með staðfestingar á öllu sem þú tekur fram, s.s. menntun, starfsreynslu o.sv.fr. Ekki er verra að láta meðmælabréf fylgja. Hér eru nánari upplýsingar um fylgigögn.
Ef þú ert á síðustu önn framhaldsskóla þegar sótt er um þá sendiru með umsókninni staðfestingu á því að þú sért við að ljúka námi auk lista yfir þá áfanga sem þú hefur lokið (biður um það í skólanum þínum). Afrit af endanlegu stúdentsskírteini sendirðu svo um leið og þú færð það, en passaðu að það þarf að hafa borist hingað fyrir 5. júlí.
Leiðbeiningar á heimasíðu skólans fyrir íslenska umsækjendur er hægt að finna hér.
Motiveret ansøgning
Hérna segirðu frá sjálfum þér, af hverju þig langar í læknisfræði og hvaða reynslu þú hefur sem gæti nýst þér í náminu. Gott er að byggja umsóknina upp líkt og atvinnuumsókn. Mundu að rökstyðja vel allt sem þú segir og sérstaklega hvernig ákveðinn reynsla gæti nýst þér í náminu. Forðastu setningar eins og “Ég vil gjarnan vinna með fólki” og “Mig hefur alltaf langað til að vera læknir” og útskýrðu frekar af hverju þú vilt vinna með fólki eða af hverju þig hefur alltaf langað til að vera læknir. Mundu að þú ert að sækja um að verða læknanemi, en ekki læknir, og byggðu því umsóknina upp samkvæmt því.
Eyðublað fyrir motiveret anøgning.
Ef þú hefur frekari spurningar þá geturðu haft samband við skólann:
Vejledning og Optagelse
Københavns Universitet Fiolstræde 1
1171 København K
(00 45) 33 14 15 36
sa-info@adm.ku.dk
Þú getur einnig sent okkur fyrirspurn, og við reynum að svara eftir bestu getu.
Gangi þér vel!
Félag íslenskra læknanema í Kaupmannahöfn