Umsóknarferlið í Óðinsvéum:



Hér fyrir neðan birtum við stutt yfirlit yfir helstu atriðin í umsóknarferlinu í Óðinsvéum auk þess sem við erum með tengla yfir á mikilvægustu staðina á heimasíðu skólans, sem við hvetjum ykkur til að skoða.
- Neðst niðri á þessari síðu er einnig að finna tengla á video frá Óðinsvéum.



Áður en lengra er haldið, þá viljum við strax taka fram að:
Umsóknarfresturinn fyrir bæði haustönn 2010 og vorönn 2011 er 15. mars, þ.e.a.s. einungis er tekið við umsóknum einu sinni á áriÞessi regla gildir einnig í Árósum og í Kaupmannahöfn.
Margir eiga það nefnilega til að flaska á þessu!




Aðgangskröfurnar fyrir íslenska umsækendur í Háskólanum í Óðinsvéum eru eftirfarandi: 
  • Umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi með lágmark 140 einingum
  • Umsækjandi þarf einnig að hafa lokið Niveau A í Dönsku --> Samsvarar 15 einingum í Íslensku
  • Þarf að hafa lokið Niveau B í Ensku --> Samsvarar 9 einingum í Ensku
  • Þarf að hafa lokið Niveau A í Stærðfræði  --> Samsvarar 20 einingum í Stærðfræði
  • þarf að hafa lokið Niveau B í Eðlisfræði  --> Samsvarar 6 einingum í Eðlisfræði
  • þarf að hafa lokið Niveau B í  Efnafræði --> Samsvarar 6 ein. - EÐA - hafa lokið Niveau A í líftæknifræði (Bioteknologi)

Hvar standa þessar upplýsingar á heimasíðu skólans?

Almennar aðgangskröfur er hægt að nálgast hér. Á heimasíðunni er einnig að finna upplýsingar um hvernig hinar almennu aðgangskröfur samsvara íslenska skólakerfinu og með tilliti til þessa er ganglegt að nýta þessa töflu! 
Heimasíðan hjá háskólanum í Kaupmannahöfn er einnig nokkuð góð, en hana er m.a. hægt að skoða hér!

- Athugið að sömu reglur um niveau gilda milli allra háskólanna!
- Athugið einnig að þessi heimasíða er mjög góð, veljið Ísland. Hér sjáið þið hvaða stúdentspróf á Íslandi eru tekin gild auk þess sem að undir "FAGNIVEAER" sjáið þið betur hvernig Niveau-in samsvara íslenska kerfinu. 
Undir "KARAKTERER" sjáið þið einnig hvernig íslensku einkunnirnar samsvara dönsku einkunnaskalanum.
 


Varðandi töfluna hér að ofan þá fór ég upp á skrifstofu skólans og fékk þar eftirfarandi að vita:

- Niveau A í Dönsku er hugsað fyrir Dani, þetta samsvarar Niveau A í Íslensku hjá okkur, þ.e. lágmark 15 einingum!
Ég fékk einnig að vita að það væri EKKI skylda að hafa lært dönsku í framhaldsskóla! Það er heldur ekki gerðar neinar sérstakar kröfur um að hafa lokið visst mörgum einingum í ákv. tungumáli í framhaldsskóla.
(það er þó aftur á móti æskilegt að hafa góða dönsku-kunnáttu ef maður ætlar sér að læra í Danmörku)

- Fysik Niveau B:
Í umsóknarferlinu í ár (2010) er einungis tilgreint að það þarf að hafa lokið 6 einingum í eðlisfræði!
Í ár er þannig MÖGULEIKI (þó allst ekki öruggt) að fá áfangann Nat 123 metinn sem 3 einingar í eðlisfræði! Senda þarf þó áfangalýsingu (á dönsku/ensku) af áfanganum með umsókninni til vonar og vara!
(Í umsóknarferlinu fyrir 15.mars á næsta ári (2011) þá verður þessu MJÖG LÍKLEGA BREYTT ásamt því að kröfurnar verða hækkaðar þannig að þá þarf LÍKLEGA að hafa lokið 9 einingum í eðlisfræði og nákvæmlega verður tilgreint hvaða áfangar það er ætlast til að sé lokið) !! Við þurfum þó ekkert að hafa áhyggjur af þessu núna!





Hvað geri ég ef ég fæ ekki stúdentspróf fyrr en í sumar?  / Hvað geri ég ef ég er með stúdentspróf en er ekki búin(n) með alla þá áfanga/einingar sem skólarnir krefja?


Athugið: VIÐKOMANDI NEMENDUR GETA SÓTT UM Í LÆKNISFRÆÐI FYRIR 15. MARS 2010 !!,
ÞVÍ ÞAÐ ER TEKIРTILLIT TIL ÞEIRRA SEM LJÚKA STÚDENTSPRÓFI FYRST NÚ Í JÚNÍ OG TIL ÞEIRRA SEM HAFA STÚDENTSPRÓF EN LJÚKA ÁKVEÐNUM AUKA ÁFÖNGUM Í JÚNÍ. 
Gert er ráð fyrir að þessir nemendur muni uppfylla aðgangskröfurnar áður en skólavist hefst!
Einkunnirnar skulu sendast strax að einkunnaafhendingu lokinni. Reglurnar segja að allar einkunnirnar þurfa að vera komnar til háskólans í seinasta lagi fyrir 5. júlí 2010.
- Munið bara að senda upphaflega með umsókninni staðfestingu á því að þið eruð einnig skráð í ákv. auka áfanga í framhaldsskóla á Íslandi (og tilgreina hvenær einkunnin kemur).

Sömu reglur gilda fyrir þá sem sækja um í Árósum og í Kaupmannahöfn!






Ég uppfylli aðgangskröfurnar - Hvernig sæki ég um skólavist?

Næst er að fylla út
umsóknareyðublöðin og senda þau til háskólans fyrir 15. mars 2010 kl. 12.00!
Sjálf umsóknareyðublöðin er hægt að nálgast bæði niðri á alþjóðaskrifstofu og rafrænt á optagelse.dk. Niðri á Alþjóðaskrifstofu er stundum boðið upp á aðstoð við að fylla umsóknareyðublöðin út, við mælum með því að þið talið við þau tímalega!

Ath.
Með umsóknareyðublöðunum áttu að senda afrit af öllum einkunnunum þínum úr framhaldsskólanum á dönsku/ensku!

Umsóknin skal vera komin til Háskólans í Óðinsvéum fyrir 15. mars 2010 kl. 12.00!






Umsókn allra íslendinga er meðhöndluð sjálfkrafa bæði í kvóta 1 og kvóta 2:

Hér til hægri er að finna tvo tengla á upplýsingar um Kvóta eitt og Kvóta tvö á heimasíðu Háskólans í Óðinsvéum.
Hér fyrir neðan er aðaláherslunum í kvóta 1 og kvóta 2 inntökuferlum lýst.


Kvóti 1:
Í kvóta 1 er umsóknin metin einungis út frá einkunnunum úr framhaldsskólanum. Þeir umsækendur með hæsta meðaltalið komast inn í læknisfræði. Ef það eru 2 ár eða minna síðan þú útskrifaðist þá færðu bónus, meðaltalseinkunnin þín er margfölduð með 1,08.

Mjög mismunandi er milli ára hvaða einkunn nægir til þess að komast inn, það veltir einfaldlega á því hverjir sækja um - það lögmál gildir að þeir hæstu komast inn!

Tölfræðina yfir árið 2009 er hægt að sjá hér á heimasíðu skólans.
Þarna kemur fram árið 2009 sóttu 2080 um í læknisfræði í Óðinsvéum í kvóta 1, þeir sem voru með einkunnina 9,4 eða meira komust inn (Þ.e.a.s. 9,4 á dönskum 12-skala sem einnig nefnis "7-trinsskala" sem samsvarar 9,6 á gamla danska 13-skalanum - þetta svarar til einkunnarinnar 8,8 á íslenska 10-skalanum) (sbr. hér á heimasíðu skólans).

Danski 7-trinsskalinn er nýr, hægt er að nota þessa heimasíðu (veljið ISLAND og þrýstið svo á KARAKTERER) til þess að reikna frá íslenska 10-skalanum yfir á danska skalann (og öfugt)


Ath. Það er mikilvægt fyrir bæði kvóta 1 og kvóta 2 umsóknarferlið að umsækendur senda afrit af öllum einkunnunum úr framhaldsskólanum á dönsku/ensku með umsóknareyðublöðunum (ansogningsskema og prioriteringsskema), svo Háskólinn í Óðinsvéum geti auðveldlega reiknað út meðaltalið þitt og einnig séð þú uppfyllir allar aðgangskröfurnar!


Kvóti 2:
Kvóta 2 ferlið í Óðinsvéum tekur ekki mið af meðaltalseinkunn úr framhaldsskólanum enda segja framhaldsskólaeinkunnir einar og sér takmarkað um hver er meðal hæfastu umsækjenda! Ef þú uppfyllir aðgangskröfurnar (tilgreindar hér að ofan) þá þarftu að þreyta inntökupróf í almennri þekkingu. Þeir hæstu úr inntökuprófinu eru svo boðaðir í viðtal.
- Allir sem uppfylla aðgangskröfurnar eru boðaðir til Óðinsvé í krossapróf í almennri þekkingu þann 15. mars 2010.
- Þeir 300 hæstu úr krossaprófinu eru svo boðaðir í viðtal þann 20. maj 2010. 

Ath. Eins og stendur hér, neðarlega fyrir miðju á heimasíðu skólans, þá á EKKI LENGUR að senda inn "motiveret ansøgning" (ritgerð).  Áður fyrr þurfti einnig að senda staðfestingar á nánast öllu sem kom fram í "motiveret ansøgning", og jafnvel meira til - en í dag Á EKKI Heldur að senda slíkt inn! (þ.e. meðmæli, staðfesting frá vinnuveitanda o.fl.)
Það eina sem á að senda inn er það sama og er tilgreint hér að ofan í kvóta 1.



Alveg óháð hvernig umsóknin er metin í kvóta 2, þá er umsóknin einnig metin í kvóta 1. Þannig þrátt fyrir að umsækjandi komist ekki í viðtal í kvóta 2 umsóknarferlinu, þá getur viðkomandi samt sem áður komist inn í námið í gegnum kvóta 1!
Ólíkt Háskólanum í Árósum og í Kaupmannahöfn þá komast jafnmargir inn í kvóta eitt og kvóta tvö í Óðinsvéum!



 _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _



Mikilvægar Dagsetningar fyrir umsóknarferlið í Óðinsvéum:

1. febrúar 2010:

Umsóknarbæklingurinn fyrir skólaárið 2010-2011 kemur út.

15.mars 2010 kl. 12.00:

Umsóknarfresturinn fyrir skólaárið 2010-2011 rennur út! Athugið að þetta er fresturinn fyrir bæði haustönn 2010 og vorönn 2011, þ.e.a.s. einungis er tekið við umsóknum einu sinni á ári!

24. apríl 2010:
Inntökupróf í kvóta 2 umsóknarferlinu
Allir sem sækja um læknisfræði í Odense og uppfylla aðgangskröfurnar eru boðaðir í Inntökupróf (krossapróf) í almennri þekkingu.

20. maj 2010:
Viðtal við þá 300 hæstu úr krossaprófinu - (framhald af kvóta 2 umsóknarferlinu)

28. júlí 2010:
Niðurstöður úr umsóknarferlinu liggja fyrir (þ.e.a.s. fyrir bæði kvóta 1 og kvóti 2 umsóknarferlið).




 _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _


Mikilvægar dagsetningar fyrir inntökuprófið á Íslandi í læknadeild Háskóla Íslands:
20. maí 2010: Síðasti skráningarfrestur í inntökuprófið á Íslandi er 20. maí (Hægt er að skrá sig hér).
Um miðjan júní 2010: Inntökuprófin eru um miðjan júní 2010. Síðast fóru þau fram 11. og 12. júní 2009 á Íslandi, við reiknum með því að prófin verði aftur um svipaðan tima þ.e.a.s. um miðjan júní 2010. (Dagsetningin liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað).

Athugið, ekki eru neinir árekstrar á milli inntökuprófanna á Íslandi og í Danmörku! Við mælum því með því að sótt sé um á báðum stöðum. Með umsókn á báðum stöðum eru auknar líkur fyrir þig á að komast inn í læknisfræði !

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _


Að lokum eru það tveir tenglar á video um Óðinsvé:
1) Fyrsti tengillinn er um eina danska stúlku sem er nýkomin inn í læknisfræði í Óðinsvéum og hún er m.a. spurð út í það hvernig henni líkar námið og umhverfið. Í viðtalinu sést m.a. örlítið af háskólanum - Þrýstið hér til að skoða.
2) Hinn tengillinn er um námsbæinn Óðinsvé og fjallar m.a. um hvaða 5 staði námsmönnum líkar vel í Óðinvéum. - Þrýstið hér



Fyrir hönd íslenskra læknanema í Óðinsvéum,
Davíð Guðnason