Árshátíð FÍLD:
Árshátíð FÍLD verður haldin í Óðinsvéum 17. apríl 2010! Húsið opnar kl.18:00 og borðhald hefst kl.19:00.
Árshátíðin verður haldin í Sal Konservativ Ungdom í hjarta Odense, Filosofhaven 42, 2.sal, 5000
Það verður boðið upp á þriggja rétta máltíð og ef að einhverjir eru með séróskir varðandi mat þá endilega
látið okkur vita sem allra fyrst.
Það kostar 200 D.kr. á árshátíðina, greiðist inn á reikning Guðnýjar Ásgeirsdóttur gjaldkera FÍLÓ;
reg:0978 kontonr.3577246939, í síðasta lagi þann 5.apríl 2010.
Vinsamlegast setjið fullt nafn sem skýringu á greiðslu og sendið staðfestingu til Guðnýar eða til FÍLD
HATTAR/HÖFUÐFÖT verður þema kvöldsins og glæsileg verðlaun verða veitt fyrir frumlegasta höfuðfatið!
Eins og undanfarin ár þætti okkur vænt um ef að hver skóli kæmi með eitt skemmtiatriði.
Makar og vinir eru hjartanlega velkomnir á sjálfa árshátíðina og kl. 23:00 opnum við svo dyrnar fyrir áhugasöm djammljón
Það er lítið mál að redda gistingu fyrir áhugasama svo ekki hika við að hafa samband.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur, kv. Óðinsvéingar!
Ný Heimasíða !
Birt; 1. Desember 2009:
Við höfum dustað rykinu af gömlu heimasíðunni og gefið henni smá andlitslyftingu ;o)
Verið er að vinna að því núna að uppfæra gamlar upplýsingar og setja einnig inn nýjar hér á heimasíðuna.
Við höfum dustað rykinu af gömlu heimasíðunni og gefið henni smá andlitslyftingu ;o)
Verið er að vinna að því núna að uppfæra gamlar upplýsingar og setja einnig inn nýjar hér á heimasíðuna.