Umsóknarferlið



Sótt um í læknisfræði í Danmörku.



Oft getur verið erfitt fyrir námsmenn að sækja um og nálgast allar upplýsingar um umsóknarferlið í læknisfræði í Danmörku. Þessi stutti pistill er ætlaður til þess að auðvelda öllum að ganga í gegnum þetta umsóknarferli.
Læknisfræði er kennd í þremur skólum í Damörku, þ.e. Háskólunum í Árósum, Kaupmannahöfn og í Óðinsvéum. Hér fyrir neðan fylgir greinargóð lýsing á því sem ég gekk í gegnum þegar ég sótti um, það er líklegt að einhver atriði hafi gleymst eða breyst þannig að vinsamlegast hafið það í huga.


 

Til þess að sækja um háskólanám í Danmörku þarf að fylla út umsókn sem heitir KOT (den Koordinerede tilmelding). Umsóknin kemur út hvert ár 1. febrúar og umsóknarfresturinn er til 15. mars kl. 12.00. Athugið að það er tekið mjög strangt á þessum fresti þannig að best er að senda umsóknina sem fyrst. Ef sent er í pósti verður að gera ráð fyrir nokkrum virkum dögum fyrir umsóknina að komast til skila. Einnig er hægt að sækja um á netinu á heimasíðunni www.optagelse.dk undir hlekknum: "ansøger til videregående uddannelse". Svar við umsóknum koma 28. júlí.

 

Ég mæli með því að fólk hafi samband við Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands þar sem hægt er að nálgast KOT-umsóknina og leita ráðgjafar um hvernig hún skuli vera fyllt út. Umsóknin er eins og lítil bók sem inniheldur leiðbeiningar um hvernig skal fylla út hvern reit á eyðublöðunum sem eru síðan einfaldlega rifin úr bókinni og send í pósti til viðkomandi skóla. Póstföngin eru einnig í leiðbeiningunum. Starfsfólkið hjá Alþjóðaskrifstofunni eru líka búin að gera stuttar leiðbeiningar á íslensku til að auðvelda fólki að skilja leiðbeiningarnar sem eru á dönsku, munið að spyrja um þær.

 

Hægt er að sækja um tvo svokallaða kvóta í umsókninni, kvóta 1 og kvóta 2. Allir Íslendingar sem senda inn umsóknina fyrir 15. mars eru sjálfkrafa metnir í báðum kvótum (þrátt fyrir að einungis ein umsókn sé send inn)!


Kvóti 1:
Ef þú er með háa meðaleinkunn áttu góða möguleika í kvóta 1. Meðaleinkunnin 8,5 úr íslensku stúdentsprófi gefur góðar líkur á að  komast inn á kvóta 1. Í hverjum skóla er í kvóta 1 ávallt valinn ákveðinn fjöldi umsækjanda af þeim sem hafa hæstu meðaleinkunnina. Það getur þvi verið mjög misjafnt milli ára hvaða einkunn nægir til þess að komast inn vegna þess að lágmarkseinkunnin veltir algerlega á því hverjir sækja um! Þannig vinsamlegast takið einkunnina með fyrivara.



Kvóti 2

Kvóta 2 umsóknin byggist á punktum sem gefnir eru samkvæmt vissu kerfi. Kerfin eru mjög mismunandi milli skólanna! Maður fær punkta fyrir meðaleinkunn í ákv. fögum, starfsreynslu, aðra menntun - jafnvel íþróttastarfsemi o.s.frv. (mjög mismunandi milli skóla). Fjöldi punkta úr þessu kerfi er mikilvægast í þessu samhengi.
Í kvóta 2 eru einnig gerðar lágmarkskröfur í vissum raunvísindagreinum (s.s. stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði --> sjá nánar undir hverjum skóla). H
já Háskólanum í Kaupmannahöfn í kvóta 2 er einnig skylda að skrifa stutta grein um sjálfan sig (skema/levnedsbeskrivelse) þar sem greinargóð lýsing á sjálfum sér þarf að koma fram.


Mikill munur er milli skóla hversu margir komast inn í kvóta 1 og kvóta 2. Í Kaupmannahöfn komast um 90% inn í kvóta 1 og 10% í kvóta 2 á meðan í Óðinvéum er hlutfallið 50:50.



Tímafresturinn fyrir umsóknina rennur út 15.mars, best er að byrja tímalega á umsókninni og setja sig vel inn í námsuppbyggingu og umsóknarferlið í hverjum skóla. Ekki láta hlutina bíða til morgundagsins, byrjið á þeim sem fyrst svo að þið lendið ekki í tímaþröng.

 

Óskar Valdórsson - Árósum